top of page
ÞAU í Hofi - útgáfutónleikar
ÞAU í Hofi - útgáfutónleikar

fös., 12. apr.

|

Akureyri

ÞAU í Hofi - útgáfutónleikar

Tónleikaveisla í Hofi 12. apríl 2024 kl. 20.

Time & place

12. apr. 2024, 20:00

Akureyri, Strandgata 12, 600 Akureyri, Iceland

About

TÓNLEIKAVEISLA Í HOFI

ÞAU flytja nýja og spennandi tónlist við ljóð norðlenskra skálda!

ÞAU fagna útgáfu annarrar plötu sinnar „ÞAU taka Norðurland“ með glæsilegum tónleikum í Hofi föstudaginn 12. apríl.

ÞAU munu flytja glæný lög þar sem ljóð skálda frá Norðurlandi lifna  við. Orðsnilld Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Huldu, Ólafar frá  Hlöðum, Önnu Ágústsdóttur og fleiri skálda öðlast nýtt líf í vönduðum tónlistarflutningi með rokk, popp, jazz og blús ívafi.

Tónleikarnir eru framhald af tónleikaröðinni „ÞAU taka Vestfirði“ sem hlotið hefur frábærar undirtektir síðustu ár.

Hljómsveitina skipa Rakel Björk Björnsdóttir sem hefur getið sér gott  orð leik- og söngkona, m.a. í Borgarleikhúsinu þar sem hún lék í  sýningunum 9 líf, Matthildur og Room 4.1, og Garðar Borgþórsson gítar-  og slagverksleikari sem hefur leikið með hljómsveitum eins og Ourlives  og different Turns og jafnframt samið tónlist fyrir fjölda leiksýninga.

Komdu á tónleika og láttu ÞAU koma þér á óvart!

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð sem er  samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og  Menningafélags Akureyrar.

Share This Event

bottom of page