

mið., 06. apr.
|Bæjarbíó, Hafnarfirði
ÞAU taka Bæjarbíó (6. apríl)
ÞAU taka Bæjarbíó 6. apríl 2022 og flytja frumsamin lög við ljóð vestfirskra skálda. Tónleikarnir eru framhald af tónleikaröðinni „ÞAU taka Vestfirði - Fáheyrt“ sem haldin var á Vestfjörðum sumarið 2021, auk þess sem útgáfa efnisins er væntanleg 11. mars 2022.
Time & place
06. apr. 2022, 20:00
Bæjarbíó, Hafnarfirði, Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður, Iceland
About
Hver eru ÞAU?
ÞAU eru par
ÞAU eru leikhús
ÞAU eru tónlist
Saman
eru ÞAU
Rakel & Gaddi
ÞAU taka Bæjarbíó 6. apríl 2022 og flytja frumsamin lög við ljóð vestfirskra skálda. Tónleikarnir eru framhald af tónleikaröðinni „ÞAU taka Vestfirði - Fáheyrt“ sem haldin var á Vestfjörðum í sumar, auk þess sem útgáfa efnisins er væntanleg 11. mars, 2022.
ÞAU eru Rakel Björk Björnsdóttir, söng- og leikkona, og Garðar Borgþórsson, tónlistarmaður. Á tónleikunum koma ÞAU fram ásamt píanóleikaranum Agnari Má Magnússyni, auk annarra góðra gesta.
Lögin og ljóðin veita innsýn í sögu, menningu og líf fólks í landinu okkar á ólíkum tímum. Hér sameinast gamlar raddir og ungar í blóma. Fortíð hittir nútíð og ljóðin öðlast framhaldslíf í vönduðum tónlistarflutningi. Höfundar ljóðanna eru m.a. Eiríkur Örn Norðdahl, Halla skáldkona, Jakobína Sigurðardóttir, Jón úr Vör, Ólína Þorvarðardóttir og Steinn Steinarr.
Komdu með okkur í ferðalag í Bæjarbíó og láttu ÞAU koma þér á óvart!
______
MIÐASALA HAFIN Á TIX.IS
https://tix.is/is/event/12362/-au-taka-b-jarbio/
____________
FYLGJAST MEÐ
Heimasíða: https://www.thauduet.com/
Facebook: https://www.facebook.com/thauduet
Instagram: https://www.instagram.com/thauduet/
Spotify: https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ?si=FYnUpF_PSsaVjsi_FlWyyg